Útiljósmyndasýningin 860+ er staðsett á miðbæjartúninu á Hvolsvelli. Sýningin var sett upp í tíunda skipti vorið 2020 við hátíðlega athöfn.
Það eru áhugaljósmyndarar úr sveitarfélaginu og nálægðum sveitum sem standa að sýningunni og setur sýningin mikinn svip á Hvolsvöll.
Myndirnar tengjast allar sveitarfélaginu, fólkinu og náttúrunni á einhvern hátt og gefur gestum oft nýja sýn á svæðið og vekur upp áhuga.
Sýningin er opin öllum og er ávallt uppi yfir sumarmánuðina.