Haustdýrðin í Tumastaða- og Tunguskógi

Þó svo það rigni heldur mikið þessa dagana þá er vel hægt að stunda skemmtilega útivist fyrir alla fjölskylduna. Ævintýraveröldin í Tumastaða- og Tunguskógi er einstaklega góður staður þar sem öll fjölskyldan getur fundið sér eitthvað til dundurs. Göngustígarnir í skóginum eru auðfarnir og búið er að setja upp lítil fróðleiksskilti á stöku stað til upplýsinga um m.a. uppbyggingu skógarins, hlaðna túngarða og umgengisreglur í skóginum.

Við bílastæði 3 má svo finna bekki og borð, hlaðið eldstæði og salernisaðstöðu. Ef gengið er örstutt lengra inn í skóginn þaðan þá má finna rólu og trjáhljóðfæri sem vekja mikla kátínu hjá yngstu kynslóðinni.

 

Umgengnisreglur fyrir göngustígana í Tumastaða- og Tunguskóg

  • Göngustígarnir eru settir upp fyrir gangandi fólk sem hugsar sér að njóta skógarins
  • Borð og bekkir eru á stöku stað til afnota
  • Engin þjónusta er veitt og ekkert gjald er tekið af notendum
  • Vinsamlegast skiljið ekki neitt rusl eftir
  • Hundar skulu vera í bandi. Ekki er heimilt að sleppa þeim lausum
  • Umferð hesta er óheimil
  • Umferð vélknúinna ökutækja er að öllu jöfnu óheimil
  • Meðferð elds er bönnuð nema á þar til gerðu eldstæði við bílastæði 3
  • Meðferð skotvopna er stranglega bönnuð