Árni Þór Guðjónsson heldur tónleika í Midgard

Eftir mörg ár í bransanum hefur Árni Þór Guðjónsson ákveðið að láta langþráðan draum rætast og henda í eina tónleika sem frontur. Árni Þór mun fara létt yfir ferilinn, leika lög sem hafa heillað hann í gegnum tíðina ásamt því að leyfa gestum að heyra eitthvað af hans eigin efni. 
Hljómsveitin sem spilar með Árna er ekki af verri endanum: 
 
Óskar Þormars trommur
Helgi Georgs hljómborð
Róbert Dan bassi
Steini Bjarka Gítar
 
Húsið opnar kl 20:00 og hefjast tónleikarnir kl 21:00
Miðaverð 3000