Saga bæjarins og Hvolsvallar

Um Visit Hvolsvöllur heimasíðuna og Ferðamálstefnu Rangárþings eystra

Visit Hvolsvöllur er ný heimasíða fyrir ferðaþjónustu í Rangárþingi eystra. Sveitarstjórn Rangárþings eystra ákvað í kjölfar áhrifa Covid-19 á atvinnugreinina í sveitarfélaginu að hrinda af stað innleiðingu Ferðamálastefnu sveitarfélagsins. Stefnan var samþykkt í sveitastjórn í mars 2019 en hafði ekki komið formlega til framkvæmda. Sveitarfélagið e eitt af þeim sveitarfélögum á landinu sem áhrif vegna Covid-19 á ferðaþjónustu kom hvað verst niður á, en greinin hefur vaxið hratt í sveitarfélaginu undanfarin ár og skapar mörg störf.

Ferðamálastefnan hefur skýr markmið og verkefni fyrir sveitarfélagið, fyrirtæki og íbúa til að vinna að. Með samstilltu átaki var hægt að hrinda af stað verkefnum eins og heimasíðunni visithvolsvollur.is þar sem allri þjónustu og helstu áfangastöðum í sveitarfélaginu eru gerð góð skil. Síðan verður lifandi miðill um áhugaverðar fréttir, fróðleiksmola og viðburði í sveitarfélaginu og liður í því að efla samvinnu aðila í greininni sem er vaxandi og styrkir sveitarfélagið og svæðið í heild sinni.

Hvolsvöllur hóf að byggjast upp fyrir 80 árum. Það er nokkurn vegin meðal mannsaldur eins og við lifum í dag og fyrir áttatíu árum var hér einungis dreifbýli þar sem brýnustu nauðsynjar varð að sækja um langa og erfiða leið ef ekki var hægt að búa þær til heima. Í dreifbýlinu hafa samt á öllum tímum verið afbragðs hagleiksmenn sem gátu smíðað ýmsar nauðsynjar, verkfæri, reiðtygi, báta og annað sem til þurfti í lífsbaráttunni. Flest þorp á Íslandi eru við sjó þar sem björgin byggist á miðunum fyrir utan og aðdrættir á nauðsynjum koma líka á sjó til íbúanna. Hér var þessu öðruvísi farið því sjóleiðin var mjög torsótt þó hún væri líka farin. Hér voru það landkostirnir sem vógu þyngst enda hvergi betri á landinu. En hvernig bar það til að í þessu dreifbýlissamfélagi varð loks til þéttbýli?

Smelltu á meðfylgjandi skjal til að lesa meira.

Heiti skjals Tegund
stiklad-a-sogu-baejar-og-mannlifs-i-hvolsvelli-i-tilefni-af-80-ara-afmaeli-thettbylis-2212.pdf extrasDocumentPdf Skoða