Hellisvellir

Þar var gangnamannakofi sem nú er hruninn. Þessi kofi var lítill svo ekki rúmaði hann alla leitarmenn og gistu því ungsmalar í helli þar rétt hjá. Þar er einnig hellisskúti og höfðu ungsmalarnir það til siðs að safna þar saman tómum fjallpelum leitarmanna og geyma í þessum skúta og heitir hann síðan Flöskuhellir. Fyrir framan kofann á vinstri hönd er lítið dalverpi og neðst í því er hlaðin hestarétt. Úr henni var síðan girt fyrir dalverpið og myndaðist þá þar aðhald fyrir fjallsafnið. Fyrir ofan kofa- rústirnar eru tvö falleg gil sem gaman er að ganga í. Frá Hellisvöllum er gönguleið inn með Gilsárgljúfrum upp að Hesti og Meri og þaðan jafnvel yfir í gangna- mannakofann á Einhyrningsflötum. Ef hins vegar er haldið áfram veginn inn á Einhyrningsflatir liggur leiðin um Tröllagjá. Tröllagjáin endar niður við Markarfljót á móts við Húsadal. Þar eru uppi hugmyndir um að setja göngubrú yfir fljótið og í Þórsmörk. Í Tröllagjá eru Vals- hamar og Valshamarsgil sem skemmtilegt er að skoða.