Tindfjöll-Tindfjallajökull

Tindfjöll eru fjallaröð með mörgum tindum og heitir sá mesti þeirra einfaldlega Tindur 1.251 metri á hæð, og dregur fjallgarðurinn nafn sitt af honum. Þó að Tindfjallajökull sé með minnstu jöklum landsins er hann á risastórum gíg, 7-10 km að þvermáli, sem hefur myndast við mikið sprengigos. Lagt er af stað upp frá bænum Fljótsdal sem er innsti bær í Fljótshlíð. Þar er ágætur jeppavegur fyrir vel búna bíla. Gott er að leggja af stað snemma dags því þá er snjórinn harðari og betri yfirferðar en um miðjan dag þegar sólbráð hefur mýkt allt. Í um 800-900 metra hæð eru þrír fjallaskálar og umhverfis þá eru góð skíðalönd og hægt að fara í ekki svo langa göngutúra á hæstu tinda. Jökullinn er frekar auðveldur yfirferðar og ekki er mikið um sprungur. Þó geta verið þar varasamar snjóhengjur. Veðráttan er mjög breytileg og þokan er fljót að skella á. Einnig ber að varast að ef snjór er nýfallinn má búast við snjóbyl með stuttum fyrirvara. Helstu tindar eru Saxi 1.303 metrar, Búri 1.235 metrar, Ýmir, sem er hæstur, 1.468 metrar, og Ýma 1.448 metrar. Ýma er aðeins austar en Ýmir en þessir tveir tindar eru samstofna tindar með skarð á milli. Útsýni er mjög gott af þessum tindum yfir á Mýrdalsjökul, Eyjafjallajökul, Þórsmörk, Markafljótsgljúfur, Lifrarfjöll, Einhyrning, Hitagilsbrúnir, Kerið og Fauskheiði. Vestan í jöklinum er mikill dalur er nefnist Austurdalur. Er jökullinn sprunginn og hættulegur þar sem hann fellur niður í dalinn. 

 

Tindfjöll

Tindfjöll

Mynd: Sigrún Lóa Svansdóttir