Vatnsdalshellir Fljótshlíð

Vatnsdalshellir er fyrir ofan bæinn Vatnsdal um 17 km frá Hvolsvelli. Um það bil 20 metra frá veginum upp að Þríhyrningi er hellir sem fáir hafa vitað af og sést tæplega úr bíl nema menn viti af honum. Hann hefur nú verið merktur. Til er þjóðsaga um Vatnsdalshelli. Kerling ein finnsk að ætt bjó með dóttur sinni í Kaupmannahöfn og leigðu þær út herbergi fyrir námsmenn. Einn veturinn bjó hjá þeim Íslendingur. Er fór að líða á veturinn fór hann að furða sig á því að á borðum var alltaf nýr silungur eða úrvals lambaket. Ekki fékk hann nein svör er hann spurði um hvernig á þessu stæði. Dóttir konunnar og námsmaðurinn íslenski fóru nú að slá sér eitthvað upp saman og hugðu mæðgurnar að þar væri e.t.v. kominn væntanlegur tengdasonur. Eitt sinn er hann spurði um matföngin leiddu þær mæðgur hann fram í eldhús og sýndu honum þar ofurlitla holu ofan í eldstóna. Þar ofan í renndu þær færi og dorguðu upp spriklandi silung. Hann varð að vonum undrandi en þær tjáðu honum að þær seiddu silunginn til sín úr Vatnsdalstjörn á Íslandi en ketið fengu þær þannig að þær seiddu til sín vænsta sauðinn úr Vatnsdalshelli. Stráksi leist ekki á blikuna og um vorið stakk hann af frá kvonfangi sínu og fór heim til Íslands. Er þangað kom fór hann að Vatnsdal og sagði heimilisfólki frá seiðkerlingunum og hættu menn bá að undrast óútskýranlegt sauðahvarf og var hætt að nota hellinn sem fjárhús. Er seiðkerlingin varð vör við þetta varð hún svo reið að hún lagði það á vatnið að allur silungur í því skyldi verða að hornsílum og hefur svo verið síðan. Vatnsdalshellir er friðlýstur.