Vatnsbrunnurinn í Tungu Fljótshlíð

Áríð 2015 tóku þeir félagar Theódór Guðmundsson og Sigurður Sigurðsson tóku sig til og gerðu upp fornfrægan vatnsbrunn þar sem Tungubærinn í Fljótshlíð stóð í eina tíð. Theódór og Sigurður létu útbúa upplýsingaskilti skammt frá Tunguskógi en vatnsbrunnurinn er rétt við Tungu-og Tumastaðaskóg. Hægt er að bergja af brunninum. Að sögn kunnugra er vatnið einstakt og stuðlar að langlífi. Svæðið er öllum opið. Brunnurinn er fjögurra metra djúpur og er þar að finna ískalt og kristaltært vatn.

Á myndinni eru þeir félagar Theódór og Sigurður