Göngum saman í Þórsmörk

Laugardaginn 26. september 2020 verður haldinn styrktar- og gönguviðburðurinn GÖNGUM SAMAN Í ÞÓRSMÖRK. Markmið viðburðarins er að koma saman og ganga hina frábæru gönguleið Þórsgötu og safna um leið áheitum til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini. Gakktu með okkur og upplifðu óviðjafnanlega náttúru Þórsmerkur í haustlitunum um leið og þú styrkir gott málefni.

Göngum saman er grasrótarfélag, sem stofnað var haustið 2007. Helsta markmið Göngum saman er að styrkja grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Félagið leggur áherslu á hreyfingu, bæði til heilsueflingar og til að afla fjár.

Viðburðurinn á facebook

Nánari upplýsingar um gönguna, verð og skráningu.